Lögregluna grunar Esther um að hafa átt þátt í hvarfi Mána og fer Lára að rannsaka bakgrunn hennar. Rannsóknin leiðir hana að verktakanum Grétari Jónssyni sem Lára grunar um að hafa átt í ástarsambandi við Esther. Dóttir Láru, Alda, verður fyrir einelti í skólanum þegar skólasystur hennar brjóta síma hennar. Grétar samþykkir að hitta Láru á kaffihúsi en hann lætur ekki sjá sig. Þegar Lára sér bílinn hans í nágrenninu fer hún að leita að honum og kemur að honum þar sem lítur út fyrir að hann hafi hengt sig.
Lára kennir sjálfri sér um meint sjálfsmorð Grétars. Alda verður fyrir meira einelti í skólanum eftir að umfjöllun í samfélaginu ásakar starfsfólk Póstsins um óhappið og er hún ásökuð um að vera dóttir morðingja. Lára kemst í samband við fyrrverandi bekkjarfélaga sinn, Davíð Ólafsson, fjármálastjóra Verkmats, og spyr hann um samband Grétars og Mána og leitar upplýsinga um Halldór sem Máni átti að vera í veiðiferð með. Stefán leitar til mannsins sem hann ásakaði um að hafa verið barnaníðingur og biður hann afsökunar um að hafa ráðist á hann. Í ljós kemur að Grétar hafi verið myrtur en ekki framið sjálfsmorð og reynir lögreglan sitt besta til að halda því leyndur frá fjölmiðlum. Lára hefur uppi á Esther og tekur viðtal við hana þar sem hún segir henni sannleikann um dauðsfall Grétars og reynir Esther þá að fremja sjálfsmorð.
Gúrkutíð skellur á í máli Grétars og Mána en Lára heldur sjálfsmorðstilraun Estherar leyndri frá samstarfsmönnum sínum. Ágúst ákveður að taka Öldu, Rakel og Sjöfn saman í sumarbústaðaferð til þess að koma í veg fyrir meira einelti á milli þeirra. Stefán fer að rannsaka bloggsíðu unglingsstelpu sem lýsir ofbeldisfullri móður sinni á netinu. Lára heldur áfram að tala við Davíð um mögulegar millifærslur frá Verkmati yfir á reikninga á Caymaneyjum. Lára fer heim til Mána til þess að leita að reikning sem Esther sagði að væri í einum jakkavasa hans en finnur í stað þess spólu úr öryggismyndavél Verkmats merkta dagsetningu tveimur dögum eftir hvarf hans þar sem Máni sjálfur sést gera millifærslu frá tölvu Halldórs.
Við endurnýjum kynni okkur við Láru Karlsdóttur og vini hennar á dagblaðinu Póstinum. Fyrstu þáttaröð lauk þegar Láru hafði tekist að fletta ofan af svindli sem tengdist verktakafyrirtæki í Reykjavík. Í lokin endaði hún í faðminum á öðrum aðaleiganda fyrirtækisins. Þegar hér er komið við sögu er sambandið enn í gangi og lítill krói er kominn í heiminn. Þegar okkur ber að garði er Lára enn í barneignarleyfi og á erfitt með að láta enda ná saman. Þegar forríkur piparsveinn bíður henni vinnu á hún erfitt með að segja nei, jafnvel þó það kosti hana mannorðið.