Útvarpsmaðurinn Andri Freyr Viðarsson fór á flakk um Ísland í sumar ásamt bolabítnum Tómasi á forláta húsbíl, Litla kút að nafni. Saman keyrðu vinirnir krókaleiðir kringum landið í leit að því skrýtna og skemmtilega.
Útvarpsmaðurinn Andri Freyr Viðarsson fór á flakk um Ísland í sumar ásamt bolabítnum Tómasi á forláta húsbíl, Litla kút að nafni. Saman keyrðu vinirnir krókaleiðir kringum landið í leit að því skrýtna og skemmtilega. Hvar er Valdi koppasali í dag? Hefur Palli í Hlíð í raun og veru skotið og drepið allar tegundir af spendýrum á Íslandi? Er lyklakippusafn Grétu á Reyðarfirði á heimsmælikvarða? Hver er meðalgreindarvísitalan á Bíladögum á Akureyri? Er hægt að keyra húsbíl yfir jökulsá? Við þessum og fleiri spurningum fást nú loks svör því Andri fer sannarlega ótroðnar slóðir á ferðalagi sínu um landshlutana sex.