Home / Series / Sigtið / Aired Order /

All Seasons

Season 1

  • S01E01 Listamaðurinn

    Fjallar um listamanninn Stein Finn Brandsson bróðir hins þekkta tónlistarmanns Kára Brands.

  • S01E02 Þráhyggjur og áráttur

    Í þættinum hittir Frímann nokkra sjúklinga Brands Árnasonar, m.a. snertifíkil og lygafíkil.

  • S01E03 Í skugga trúðsins

    Frímann ræðir við syni Kralla Trúðs, tveir þeirra hafa tekið arfleið Kralla inn í störf sín sem sálfræðingur og læknir, en sá þriðji hefur aðra skoðun á þeim gamla.

  • S01E04 Dauðinn

    Frímann er við dauðans dyr eftir að hafa kafnað á kjötkúlu Kristjáns, ræðir m.a. við miðil.

  • S01E05 Glæpur og refsing

    Frímann kannar undirheimanna, ræðir við fyrrum handrukkara og hann, ásamt Grétari Boga, aðgætir hversu erfitt það sé að smygla eiturlyfjum til landsins.

  • S01E06 Fordómar

    Fordóma þarf að uppræta, Frímann gerir sitt besta til þess að minnka fáfræðina sem veldur fordómum, m.a. með því að kynna sér hvernig það er að vera í hjólastól.

  • S01E07 Líf og stíll

    Gott Design söng Kári brands eitt sinn. Frímann eyðir degi með smekkmönnunnum Finna og Sjonna og kynnist góðri hönnun.

  • S01E08 ...Með Frímanni Gunnarssyni

    þarna er Sigtinu beint að Sigtinu sjálfu, Grétar Bogi fjallar um smekkmanninn Frímann Gunnarsson.

Season 2

  • S02E01 Vitinn

    Frímann hyggur á að gefa út bók. Til að fá næði fyrir skrifin fer hann í vita úti á landi þar sem hann hittir fyrir furðufuglinn Val vitavörð. Fjarvera hans frá sjónvarpsþættinum verður til þess að hann missir hann í hendurnar á Páli Bjarna.

  • S02E02 Háskólinn

    Frímann beitir brögðum til þess að koma sér að sem kennara í fjölmiðlafræði við Háskóla Íslands.

  • S02E03 Börn

    Frímann telur að honum verði ókleift að eignast börn í framtíðinni. Þetta veldur miklu fjaðrafoki í lífi Frímanns sérstaklega vegna þess að átrúnaðargoð hans, tónlistarmaðurinn Kári Brands, hefur nýlega eignast barn.

  • S02E04 Fórnarlambið

    Frímann reynir hvað eftir annað að ná sambandi við stöðvarstjóra til að fá nýjan sjónvarpsþátt. Endar það með því að Frímann treður sér inn í knattspyrnuleik og fer m.a í hár saman við Pál Bjarna.

  • S02E05 Sambandið

    Séð og Heyrt birtir myndir sem gefa það til kynna að Frímann sé samkynhneigður. Frímann beitir ýmsum ráðum í tilraun sinni til þess að afsanna það.

  • S02E06 Listalestin

    Eftir að skáldið Anton Garðar kemst ekki til þess að taka þátt í listalestinni býðst Frímanni að taka þátt í henni. Þar fer hann halloka fyrir Flippskunkunum sem verður til þess að Frímann reynir að höfða meira til ungu kynslóðarinnar.

  • S02E07 Viðurkenningin

    Frímann fær loksins viðurkenningu fyrir sín góðu störf, eða hvað?

Additional Specials

  • SPECIAL 0x1 Leikritið

    Frímanni tekst að fá leikhús til þess að setja upp leikrit sem hann skrifaði, „Inspectum Est Humanum“. Það gengur erfiðlega vegna þátttöku Frímanns í undirbúningi sýningarinnar og endar með ósköpum.