27. September 2014 barst neyðarlínunni símtal vegna konu sem fannst látin á heimili sínu við Stelkshóla í Breiðholti.
17. Ágúst 2009 var tilkynnt um manndráp að Dalshrauni í Hafnarfirði
Ummerkin ljúga ekki og það veit tæknideild lögreglu. Hluti úr skófari eða agnarsmár blóðdropi geta meira að segja upplýst um heilt sakamál.
Í fyrsta sinn í sögunni féll einstaklingur fyrir skoti íslenskrar lögreglu. Aðgerðirnar voru einhverjar þær umfangsmestu sem lögregla og sérsveit hafa ráðist í og rannsókn málsins fordæmalaus.
Hrottalegt morð sem framið var á Hagamel árið 2017. Þá myrti Khaled Cairo, hælisleitandi frá Jemen, Sanitu Brauna, 44 ára gamla konu frá Lettlandi sem hafði búið hér og starfað í langan tíma. Khaled taldi sig vera í sambandi við Sanitu en það var hugarburður hans. Þau höfðu hist einu sinni áður og hún vildi ekkert með hann hafa, en einhver þráhyggja í garð konunnar virðist hafa gripið hann.
Á köldum vetrardegi árið 2002 fannst 51 árs strætisvagnabílstjóri látinn fyrir utan íbúðarhús í Vesturbæ Reykjavíkur. Augljóst var að honum hafði verið ráðinn bani en maðurinn hafði ekkert unnið sér til saka og átti ekki óvini, heldur var hann á röngum stað á röngum tíma.