Í þessum þætti þurftu keppendur að búa til stuttmynd, flytja listgjörning og setja upp töfrasýningu. Auddi og Anna Svava leira, Steindi og Saga fara í skemmtilega Kringluferð og keppendurnir sýndu að lokum glæsileg og skrautleg töfrabrögð með smá aðstoð frá Lalla töframanni og Einari einstaka.
Í þessum þætti þurftu keppendur að búa til auglýsingu, búa til fyndið fjölskyldumyndband og að lokum flytja söngatriði á Stóra sviðinu. Auddi steypist í sjóinn, Steindi og Frikki auglýsa skóhorn og bræðurnir, Jón Jónsson og Frikki Dór, hjálpa Audda og Steinda við að koma fram og flytja söngatriðin.
Í þessum þætti þurftu keppendur að gerast áhrifavaldar, endurgera atriði úr frægri kvikmynd og flytja spunaatriði á Stóra sviðinu. Auddi og Björn Hlynur gerast Instagram áhrifavaldar, Steindi og Jón Gnarr gerast mafíósar fyrir kvimyndaratriði og keppendur sýna skondin spunaatriði um sambandsslit og yfirheyrslur.
Í þessum þætti þurftu Auddi og Steindi að fara með gestum sínum á rómantískt stefnumót, búa til gómsæta brauðtertu og sýna að lokum dansspor á Stóra sviðinu. Auddi og Birna María fara á stefnumót með óvæntum gesti: syni Audda. Steindi fer með Júlíönnu á Aktu taktu í limmósíu og að lokum flytja keppendur gjörólík dansatriði.
Í þessum þætti þurftu keppendur að búa til stutta teiknimynd, endurgera atriði úr kvikmynd og vera með uppistand á Stóra sviðinu. Ari sýnir eftirhermuhæfileika í teiknimynd þeirra Steinda, Sveppi reynir að líkja eftir Nicolas Cage og keppir Sveppi við atvinnuuppistandarann hann Ara um besta uppistandið.
Í þessum þætti þurftu keppendur að taka ljósmynd af sér með flottum farða, búa til tónlistarmyndband og að lokum þurftu tónlistarmennirnir, Bríet og Aron Can, að flytja eigin lög með nýjum texta sem hitt liðið hafði samið fyrir þau. Aron gerist tígrísdýr og Bríet flytur lagið sitt, Esjuna, með nýjum og frumlegum texta eftir Steinda og Aron.
Katla Margrét og Halldóra. Í þessum þætti þurftu keppendur að búa til stuttmynd, fara á smíðanámskeið og setja upp söngleikjaatriði.
Í þessum þætti þurftu keppendur að búa til barnaefni, endurgera kvikmyndasenu og keppa í fyndnum orðaleik.
Í þessum þætti þurftu keppendur að búa til tónlistarmyndband, hanna flík og syngja lag með breyttum texta.
Í þessum þætti þurftu keppendur að breyta sér í hrekkjalóma, búa til frétt og keppa í ræðukeppni.
Í þessum þætti þurftu keppendur að skapa listgjörning, endurgera sjónvarpssenu og keppa í svokölluðu lipsynci eða mæmi.
Í þessum þætti þurftu keppendur að búa til raunveruleikasjónvarp, setja sig inn í sjónvarps- eða kvikmyndasenu og keppa í spuna.
Í þessum þætti þurftu keppendur að halda partý, búa til auglýsingu og setja upp töfrasýningu.
Ragnhildur Steinunn og Sigrún Ósk