All Seasons

Season 1

  • S01E01 Velkomin í bekkinn

    • December 1, 2022
    • RÚV

    Randalín byrjar í nýjum skóla og gerir eitraða og örvæntingarfulla tilraun til að ná athygli Munda og verða vinkona hans.

  • S01E02 Stórreykingakonan

    • December 2, 2022
    • RÚV

    Randalín og Mundi leita til dávalds til að bjarga Randalín frá stórhættulegum ávana og kynnast hinni mögnuðu Grétu Hansen.

  • S01E03 Gréta Hansen

    • December 3, 2022
    • RÚV

    Heima hjá Grétu Hansen borða Randalín og Mundi yfir sig af gömlu nammi og komast að því að framundan eru dularfull verkefni sem þeim ber að leysa með hjálp enn dularfyllri verkfæra.

  • S01E04 Snákurinn

    • December 4, 2022
    • RÚV

    Randalín og Mundi eignast nýja vini í nágranna sínum Jakobi og kulvísa snáknum hans og líka manni sem segist vera sjálfur Stekkjastaur.

  • S01E05 Hættulegi maðurinn

    • December 5, 2022
    • RÚV

    Ógnvænleg öskur heyrast frá íbúð Ketils og skringilegur gjörningur hans á jólatónleikum Vox Happiness vekur áleitnar spurningar hjá krökkunum.

  • S01E06 Jóhólalegur kúreki

    • December 6, 2022
    • RÚV

    Fatíma, nýja vinkona krakkanna, hverfur skyndilega af jólatónleikunum ásamt dóttur sinni og hinn fjandsamlegi Ketill verður æ grunsamlegri.

  • S01E07 Húsfundurinn

    • December 7, 2022
    • RÚV

    Rafmagnið fer skyndilega af blokkinni og Randalín og Mundi leggja í hættulegan leiðangur niður í myrkan kjallarann.

  • S01E08 Karlaskvísuboð

    • December 8, 2022
    • RÚV

    Randalín og Mundi fara til Grétu Hansen í leit að upplýsingum um myrkraverk Ketils og neyðast til að setja á svið kaffiboð til þess að fá fleiri vísbendingar.

  • S01E09 Ein heima

    • December 9, 2022
    • RÚV

    Krakkarnir baka fyrir hina árlegu piparkökuhúsakeppni en fljótt kemur í ljós að þeim er ýmislegt betur til lista lagt en að baka piparkökuhús eins og til dæmis það að gera símaat.

  • S01E10 Piparkökuhúsakeppni

    • December 10, 2022
    • RÚV

    Þegar Randalín verður ljóst að þau Mundi eiga eftir að tapa fyrir Anítu og Stefáni í piparkökuhúsakeppninni reynist henni erfitt að hafa stjórn á sér.

  • S01E11 Bakaraprinsessan

    • December 11, 2022
    • RÚV

    Öll spjót beinast að Randalín og Munda sem nauðverjast í erfiðri stöðu.

  • S01E12 Bókasafnskortið

    • December 12, 2022
    • RÚV

    Óvænt heimsókn lögreglunnar í leit að Fatímu og Nínu styrkir krakkana í þeirri trú að Ketill hafi eitthvað að fela.

  • S01E13 Spennuþrungin nótt

    • December 13, 2022
    • RÚV

    Krakkarnir geta ekki sofið fyrir endalausum heilabrotum um jólagjafir og grunsamlega hegðun fullorðna fólksins og hætta sér í spennuþrunginn rannsóknaleiðangur að næturlagi.

  • S01E14 Kjallarinn

    • December 14, 2022
    • RÚV

    Samviskan er farin að naga örþreytta krakka eftir svefnlausa nótt og Mundi vill játa yfirsjónir sínar fyrir Anítu og Stefáni en Randalín er efins.

  • S01E15 Ástin bankar upp á

    • December 15, 2022
    • RÚV

    Gréta Hansen gefur mikilvæg ráð en Ketill slær persónulegt met í leiðindum. Randalín og Mundi velta fyrir sér hvort grunsamleg hegðun nágrannanna eigi sér eðlilegar skýringar.

  • S01E16 Hver á snuðið?

    • December 16, 2022
    • RÚV

    Foreldrar Munda verða æ skrýtnari, pendúllinn virðist hættur að virka og krakkarnir komast að leyndarmáli.

  • S01E17 Klísturkökur

    • December 17, 2022
    • RÚV

    Loksins fá krakkarnir svör við mikilvægum spurningum sem reynast snerta fleiri en nágrannana og eru stærri en þau óraði fyrir.

  • S01E18 Árbæjarsafn

    • December 18, 2022
    • RÚV

    Það sem virðist í fyrstu vera sakleysisleg bekkjarferð á Árbæjarsafn reynist leiða til örlagaríks upplýsingaleka í boði Anítu og Stefáns.

  • S01E19 Rauð viðvörun

    • December 19, 2022
    • RÚV

    Þótt rómantíkin svífi yfir vötnum hjá fullorðna fólkinu á Árbæjarsafni magnast ótti krakkanna um að Fatíma og Nína séu í vanda og þau reyna sitt besta til þess að hjálpa.

  • S01E20 Útgáfuboð

    • December 20, 2022
    • RÚV

    Randalín og Mundi stela veitingum og stinga af úr jólalegu ljóðaboði á hlýlegan og dulrænan felustað.

  • S01E21 Uppljóstrarar

    • December 21, 2022
    • RÚV

    Óvinir Randalínar og Munda elta þau á felustað Fatímu og það hefur örlagaríkar afleiðingar.

  • S01E22 Mótmæli

    • December 22, 2022
    • RÚV

    Jólaballið í skólanum tekur óvænta stefnu þegar Aníta og Stefán vilja gera hreint fyrir sínum dyrum og skólafélagarnir átta sig á hvers þau eru megnug ef þau leggjast á eitt.

  • S01E23 Vond lykt

    • December 23, 2022
    • RÚV

    Randalín og Mundi finna ráð við fýlunni af kæstri skötu og átta sig á að þegar vináttan verður flókin er best að ræða

  • S01E24 Jólin

    • December 24, 2022
    • RÚV

    Nágrannakærleikurinn er aldrei mikilvægari en á jólunum og jólaboð Fatímu tekur óvænta stefnu, en hvar er snjórinn?