Danni byrjar að vinna í Húsdýragarðinum og á móti honum tekur Ómar. Fríða mælir Danna út, hún er miðaldra að detta úr barneign en þráir ekkert heitara en að eignast barn. Andri sýnir Danna garðinn. Á starfsmannafundi kemur í ljós að borgin ætli að einkavæða garðinn og að nýr eigandi sé Baddi, drykkfelldur braskari. Hann breytir nafninu í Eurogarðinn með Disneyland sem fyrirmynd.